Whey Isolate Próteinduft 908 grömm
- Próteinduft sem er þróað fyrir einstaklinga sem hafa farið í efnaskiptaaðgerð en hentar líka vel fyrir þá sem eru meðvitaðir um heilsusamlegt líferni án aðgerðar. Í þessu Whey Isolate próteindufti eru innihaldsefni sem gefa langvarandi orku og styðja við uppbyggingu vöðvamassa.
- Af hverju að velja þetta prótein? Próteinið frá ProCare Health hefur einna hæst hlutfall af próteini í hverjum skammti, auk þess sem í það er bætt söltum, ónæmisstyrkjandi efnum og meltingarensímum.
- Whey Isolate: inniheldur 90-95% prótein! Whey prótein er auðmeltasta tegund próteins. Það hefur einnig mjög hátt hlutfall af BCAA-amínósýrum.
- Ónæmisstyrkjandi efni:
- D-vítamín: fituleysanlegt vítamín sem gegnir lykilhlutverki í ónæmiskerfinu. Það styður við hlutverk ónæmisfruma eins og T-fruma og átfruma (macrophages) sem vernda líkamann fyrir sýklum.
- C-vítamín: mikilvægt andoxunarefni sem verndar frumur líkamans fyrir áhrifum sindurefna (free radicals) og eflir ónæmiskerfið.
- Zink: Nauðsynlegt steinefni sem styður við marga þætti ónæmiskerfisins. Zink styður við þroska og hlutverk ónæmisfruma.
- Viðbætt sölt:
- Natríum: Viðheldur vökvajafnvægi og styður við blóðþrýsting. Er nauðsynlegt fyrir vöðva- og taugastarfsemi.
- Kalíum: Hefur hlutverk við stjórnun á vökvajafnvægi, flutningi taugaboða og stýringu á vöðvasamdrætti.
- Magnesíum: Gegnir lykilhlutverki í flutningi kalks, súrefnis, natríum og kalíum í frumum líkamans. Styður einnig við ónæmiskerfið.
- Klór: Gegnir hlutverki í vökvajafnvægi fruma líkamans.
- Kalk: Gegnir mikilvægu hlutverki í seytingu hormóna, beingerð og vöðvasamdrætti.
- Meltingarensím:
- Papain: er unnið úr hýði papaya ávaxtarins. Það hjálpar til við að brjóta niður prótein úr næringunni og auðveldar upptöku þeirra.
- Protease: Þessi ensím hjálpa til við að brjóta prótein niður í amínósýrur.
Næringarinnihald í 100 gr: Orka: 1536 kJ/367 kkal
Fita: 1,7-3,3 gr - þar af mettuð fita 0 gr
Kólesteról: <17 mg
Kolvetni: 3,3 gr - þar af sykur <3,3 gr
Prótein: 87 gr
C-vítamín: 200 mg
D-Vítamín: 83 µg (3.333 ae)
Kalk: 473 mg
Magnesíum: 20 mg
Zink: 25 mg
Króm: 10 µg (súkkulaðibragð)
Klór: 200 mg
Natríum: 350 mg
Kalíum: 583-723 mg
Innihaldsefni: Whey Prótein Isolate, Kakóduft (súkkulaðibragð), Náttúruleg og viðbætt bragðefni, Xanthan, Súkralósi, Meltingarensím (Papain, Protease).
Inniheldur: Mjólk
Frekari upplýsingar
Bragðtegund | Vanillubragð, Súkkulaðibragð |
---|